Tyrkjaránið er minnisstætt fyrir margra hluta sakir, meðal annars vegna þess að hér er um að ræða einu hernaðarárás sem gerð hefur verið á landið þar sem mannfall hefur orðið svo að heitið geti. En frumskilyrði fyrir því að það er í minnum haft er þó að mikið var skrifað um það fljótlega eftir að það gerðist og því er mikið um það vitað. Helstu íslensku ritin um ránið eru þessi:
- Rit Kláusar Eyjólfssonar mektarbónda og lögsögumanns í Austur-Landeyjum. Hann byggði rit sitt á frásögn þeirra sem komust af úr ráninu í Vestmanneyjum og á því sem hann sjálfur sá á vettvangi þar. Kláus skrifaði lýsingu sína strax eftir ránið og hún markast af skelfingu þeirra sem voru til frásagnar. Hann lýsti þó vígi séra Jóns Þorsteinssonar, annars tveggja presta í Eyjum, á yfirvegaðan hátt, sem helgisögu um píslarvott.
- Stutt frásögn skrifuð eftir skólapiltum frá Austurlandi sem voru í Skálholti veturinn eftir ránið.
- Lýsing (reisubók) séra Ólafs Egilssonar prests í Vestmannaeyjum en hann var hertekinn, færður með fjölskyldu sinni til Algeirsborgar (sem nú er höfuðborg Alsírs) en sleppt fljótlega. Hann var hvattur til að skrifa um reynslu sína og lýsti hann henni af yfirvegun og oft af nákvæmni, allt frá viðbúnaði við ránsmönnum í Vestmanneyjum til þess að honum var sleppt í Algeirsborg og hann fór þrautargöngu gegnum Evrópu til Kaupmannahafnar og loks til Íslands.
- Nokkur sendibréf Íslendinga frá Algeirsborg.
- Samantekt Björns Jónssonar frá Skarðsá sem var eins konar „hirðritari“ Þorláks Skúlasonar biskups á Hólum. Biskup bað hann að skrifa yfirlitssögu um ránið eftir þeim rituðu heimildum sem þá voru til. Sumt af því sem hann byggði á glataðist síðar.
- Tyrkjaránið á Íslandi. 1906-1909. Reykjavík, Sögufélag.
- Þorsteinn Helgason (handrit og stjórn), Hjálmtýr Heiðdal (umsjón), Guðmundur Bjartmarsson (myndataka). 2002. Tyrkjaránið. Heimildamynd fyrir sjónvarp í þrem hlutum. Framleiðandi: Seylan.
- Steinunn Jóhannesdóttir. 2001. Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Skáldsaga byggð á heimildum. Reykjavík, Mál og menning.
- Myndin er fengin af Ferlir.is.